Við hjá Markmáli sérhæfum okkur í tækniþýðingum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Starfsfólk okkar eru málfræðingar sem hafa gert tæknimál að rannsóknarefni í háskólanámi sínu.
Hvort sem þú þarft að láta þýða hugbúnaðarskipanir, leiðbeiningar með vélum eða vefsíðu þá er starfsfólk okkar ávallt reiðubúið að koma til móts við þarfir þínar.
Við þýðum allt úr ensku, þýsku og íslensku, og yfir á þessi sömu mál. Ef þú þarft þýðingar úr eða á önnur mál þá erum við í tengslum við þýðendur sem geta annast þau verkefni.
Markmál | Stórhöfða 15, 110 RVK | Pósthólf 12066, 132 RVK | Sími: 577-5003 & 660-5003 | markmal@markmal.is